FréttirSamstarf
Áður en frávik verður að bilun
HD og Tero hafa tekið höndum saman um að tengja ástandsvöktun og ástandsgreiningu vélbúnaðar við viðhaldsstjórnun. Markmiðið er að upplýsingar um ástand búnaðar leiði til réttra aðgerða á réttum tíma, áður en frávik þróast í bilun.
- MælingTitringur 2,1 → 5,4 mm/s
- Greining HDOrsök og hversu brýnt
- Verk í Tero.OpsSkipulagt í hléi á vinnslu
- FramkvæmdHD eða eigið fólk
- Saga búnaðarinsNýtist við næstu mælingu
Óvænt bilun í lykilbúnaði getur með litlum fyrirvara stöðvað veiðar, vinnslu eða aðra mikilvæga starfsemi og haft verulegan kostnað í för með sér. Búnaður gefur þó oft merki um breytingar áður en hann bilar. Með ástandsvöktun og greiningum er hægt að koma auga á þessi frávik og bregðast fyrr við. Mestur ávinningur næst þegar niðurstöðurnar leiða til ákvörðunar, viðhaldsverkefnis og aðgerða.
Sérþekking á búnaði og reynsla af viðhaldsstjórnun
HD hefur um árabil sinnt verkefnum fyrir sjávarútveginn og byggt upp sérþekkingu á ástandsvöktun og ástandsgreiningu vélbúnaðar. Þegar mælingar gefa vísbendingar um frávik geta sérfræðingar HD greint orsökina, metið hversu brýnt er að bregðast við og fylgt málinu áfram í viðhald eða viðgerð.
Tero hefur þróað hugbúnað fyrir viðhald í meira en þrjá áratugi og Viðhaldsstjórinn er vel þekkt lausn fyrirtækisins. Á þeim grunni hefur Tero þróað Tero.Ops, nýja kynslóð hugbúnaðar fyrir viðhald og rekstur. Í Tero.Ops eru upplýsingar um búnaðinn á einum stað: viðhaldssaga, verk, varahlutir og innkaup, bæði í landi og um borð í skipum.
Frá fyrstu vísbendingu til lokinnar viðgerðar
„Við viljum geta fylgt viðskiptavininum alla leið – frá því að greina ástand búnaðar og sjá hvar þörf er á aðgerðum yfir í skipulag, undirbúning og framkvæmd. Með samstarfinu við Tero getum við tengt þessa þætti betur saman og gefið viðskiptavinum skýrari sýn á sinn búnað og rekstur.“
Sem dæmi má taka dælu í fiskvinnslu þar sem mælingar sýna stigvaxandi frávik. Sérfræðingar HD greina orsökina og meta hversu brýnt er að bregðast við. Í Tero.Ops er viðhaldsverkefnið skipulagt þannig að það raski rekstrinum sem minnst. Ef þörf krefur annast HD framkvæmdina.
Að verki loknu er framkvæmdin skráð í sögu búnaðarins. Þar varðveitist hvað kom upp og hvernig brugðist var við, og upplýsingarnar nýtast við næstu mælingar, ákvarðanir og viðhaldsverkefni.
„Gæði viðhaldskerfis ráðast að stórum hluta af þeim upplýsingum sem í það berast og því hvernig þeim er fylgt eftir. Í samstarfinu við HD tengjum við saman gögn frá búnaðinum sjálfum, sérfræðiþekkingu við greiningu þeirra og ferlið sem tekur við þegar bregðast þarf við. Þannig verður til samfelld saga hvers tækis, frá fyrstu merkjum um frávik til lokinnar viðgerðar.“
Sjáðu lausnina í verki á IceFish
Á bás HD, C36, á IceFish 2026 verður sýningarvél með ástandsvöktun tengd við Tero.Ops. Gestir geta fylgst með í rauntíma hvernig mælingar gefa vísbendingu um frávik og hvernig upplýsingarnar nýtast áfram við greiningu, skipulagningu og framkvæmd. Sérfræðingar HD og Tero verða á staðnum, og gestir eru hvattir til að koma með dæmi úr eigin rekstri.
Greinin birtist einnig á vef HD: hd.is